SVEITIN Í BORGINNI


Víðidalur er stórt opið svæði milli Breiðholts og Árbæjar ætlað hestamönnum og íslenska hestinum. Er landsvæðið það eina sem hestamenn hafa til afnota í Reykjavík eftir að hesthúsahald við Sprengisand var lagt niður.

Víðidalur skiptist í tvö aðskilin hesthúsahverfi, byggð á þéttu hnitakerfi, sem tengjast með Reiðhöllinni sem stendur á miðju svæðinu. Er byggð því mjög dreifð og möguleikar mikilir á að breyta skipulagi og nýta svæðið betur.

Íslenski hesturinn hefur verið stolt þjóðarinnar í yfir 1000 ár og er mikið aðdráttarafl túrsima hér á landi. Stjórnarráð Íslands hefur í samstarfi við Íslandsstofu, Félags hrossabænda og Landssambands hestamannafélaga hrynt af stað markaðsverkefni til að auka enn frekar á verðmætasköpun sem byggir á íslenska hestinum, styrkja ímynd hans í vitund fólks um allan heim og byggja upp sterkt vörumerki í hans nafni. Viljum við því með endurhönnun svæðisins styðja við þá vinnu og gera íslenska hestinn og Víðidal aðgengilegri almenning svo að allir fái sem best notið.

Tillaga okkar að breyttu skipulagi í dalnum gengur því út frá því að auka aðgengi að svæðinu og gera þar einstaka paradís fyrir hestaiðkenndur, aðra áhugasama og svo að sjálfsögðu íslenska hestinn. Felast breytingarnar í endurskipulagningu hesthúsa, nýju gistirými, breyttu vegakerfi, stærri dýraspítala, nýrri reiðhöll og safni, tileinnkað íslenska hestinum.


Göngu -og hjólaaðgengi í Elliðaárdalnum er nokkuð gott en þó mætti Víðidalurinn tengjast betur inn á það kerfi. Hringvegur liggur um hesthúsahverfið sem minni botnlangar tengjast inn á. Einnig er möguleg aðkoma akandi úr Árbænum. Þó nokkuð er um reiðstíga á svæðinu en enginn liggur til norðurs inn með Elliðaánni.

Í nýju skipulagi er reiðstíg því bætt við meðfram göngu -og hjólreiðastíg sunnan megin við ánna. Einnig bætum við aðgengi úr Breiðholti með tveimur nýjum tengingum yfir á svæðið á norðurenda Víðidalsins og fyrir miðju hans. Bílaumferð verður áfram leyfð um hringveginn og eldra hesthúsahverfið til norðurs en umferð um minni götur til suðurs verður takmörkuð. Þrjú bílastæði má finna dreift á hringveginn svo að gott aðgengi sé á alla meginstaði. Einnig verður bílastæði úti við samkomuhúsið í eldra hverfinu.

Meginbreytingar á svæðinu fara fram í nýrra hverfinu til suðurs sem í dag samanstendur af 38 byggingum. Hver þeirra inniheldur 6-7 hesthús og er því eigandafjöldi sexfaldur á við byggingarnar. Má því gera ráð fyrir að hestar á svæðinu séu fjórföld sú tala þar sem að hvert og eytt hestuhús hefur að meðaltali um fjóra bása.

Viljum við bæta verulega í þessar tölur og bjóða enn fleiri hesta og hestaeigendur velkomna á svæðið. Teygt verður á núverandi gatnakerfi svo að betra flæði verði á svæðinu. Þannig verður til pláss fyrir enn þá fleiri hesthús, enn þá fleiri hesta og enn þá fleira fólk.
Miðkjarna hesthúsabyggðarinnar verður haldið óbreyttum en hann telur 28 hús. Verður svo 65 hesthúsum bætt við eftir ákveðnu kerfi í skeifu utan með þeim gömlu.
Í norðurhorninu verða síðan 13 hús þar sem boðið verður upp á gistiaðstöðu fyrir fólk sem vinnur á svæðinu til langstíma og tímabundið auk þess sem í boði verður gisting fyrir ferðamenn byggð á upplifun náttúrunnar og hestsins.

Vegna hestanna verður bílaumferð um minni götur í suðurhluta dalsins takmörkuð við nauðsynlegar ferðir eigenda. Að öðru leyti verða malarstígarnir einungis ætlaðir hestinum, manninum og hjólinu. Nýir stígar verða svo lagðir í tengslum við þá sem fyrir eru til allra átta innan Víðidalsins til að auka frekar á aðgengi hestamanna og aðkomufólks.

Græn svæði verða meðfram öllum stígum og á milli allra húsa þar sem hestarnir geta lifað frjálsara borgarlífi en þeir gera í dag. Eru þessi svæði jafnframt ætluð samskiptum manna og hesta en ef marka má fjölda ökutækja lögðum ólöglega í vegköntum íslenska hringvegarins er eftirspurn eftir slíku mikil.






Final Diagram of the area

Urban Lab - Design Agency